hópaviðburðiR

dans fyrir hópa

Ertu að skipuleggja gæsun, vinnustaðafjör, vinkvennakvöld, afmæli eða annan skemmtilegan viðburð? Þá er dans frábær leið til að hrista hópinn saman, hlæja, sleppa sér og skapa skemmtilegar minningar.

Ég býð upp á danskennslu fyrir hópa þar sem upplifunin er sniðin að ykkur. Þið getið valið ákveðið þema, lag eða dansstíl – eða leyft mér að setja saman eitthvað skemmtilegt fyrir hópinn.

Ég hef meðal annars kennt Grease, Bad Bunny, ABBA, línudans og ýmis önnur þemu – það eru endalausir möguleikar!

Engin dansreynsla er nauðsynleg. Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gaman saman, læra einfalda og skemmtilega rútínu og fá alla með – líka þau sem segjast „ekki kunna að dansa“!

Ég kem til ykkar eða þið komið til mín – allt eftir því hvað hentar hópnum best.

Komið með hugmyndina – og við gerum eitthvað gaman saman!

dansaðu eins og enginn sé að horfa