há orka og eintóm gleði

Í hverjum tíma lærum við nýja og aðgengilega dansrútínu þar sem við blöndum saman ólíkum stílum – meðal annars commercial, latin, jazz funk, disco og hip hop. Ég legg áherslu á skemmtilega tónlist og orkumiklar dansútínur, svo að tímarnir verði líka að skemmtilegri líkamsrækt.

Við byrjum á léttri upphitun þar sem við komum líkamanum af stað, mýkjum okkur upp og finnum taktinn. Svo tekur við ný dansrútína sem er kennd skref fyrir skref.

Rútínurnar eru aðgengilegar, en geta líka aðeins ögrað þér – enda er extra gaman þegar maður finnur að maður er að ná einhverju nýju! Við dönsum við alls konar tónlist og blöndum saman ólíkum stílum, svo engir tveir tímar eru alveg eins.

Á laugardögum lærum við nýja rútínu og dönsum hana saman – með gleði, orku og góðri tónlist í fyrirrúmi.

Á mánudögum tökum við rútínuna aftur fyrir, rifjum hana upp og gefum okkur aðeins meiri tíma til að kafa ofan í hana. Þá bætum við líka við smá danstækni, vinnum með hreyfingar, líkamsbeitingu og smáatriði og fáum tækifæri til að verða öruggari í dansinum.

Þú getur mætt í annan tímann eða báða – og alltaf farið á þínum eigin hraða. Markmiðið er ekki fullkomnun, heldur að læra, hreyfa sig, finna gleðina og dansa meira!

ATH. SKRÁNING ER EKKI NAUÐSYNLEG Í TÍMANA - BARA MÆTA Á STAÐINN!

rými til að dansa, eflast og tilheyra - á dansgólfi þar sem enginn dæmir