DANS GEFUR MÉR ORKU OG LÍFSKRAFT
Í hvert skipti sem ég hef verið spurð þessarar spurningar er svarið alltaf það sama:
Þegar ég dansa.
Ég byrjaði að dansa átta ára gömul á akranesi með vinkonum mínum. Við stofnuðum okkar eigin danshóp, sömdum dansa og kepptum í freestyle. á þeim tíma dreymdi mig um að vera danshöfundur þegar ég yrði stór.
Seinna opnaðist fyrir mér heill heimur ólíkra dansstíla í gegnum Ferðalög til Suður-Ameríku. meðal annars lambada, samba og forró og á mismunandi tímabilum heilluðu magadans, flamenco og tangó mig líka.
Svo kom salsa.
Árið 2008 kolféll ég fyrir salsa og það varð stór hluti af lífi mínu. Ég kenndi salsa um tíma, tók þátt í sýningum og dansaði eins mikið og ég gat. Í kringum 2014 hvarf dansinn þó nánast alveg úr lífi mínu, en nokkrum áður seinna fann ég smám saman leiðina aftur að dansinum – og um leið aftur að stórum hluta af sjálfri mér.
Árið 2022 byrjaði ég að kenna solo salsa. Smám saman þróuðust tímarnir og fleiri dansstílar læddust inn. Úr varð blanda af því sem ég hef lært, dansað og elskað í gegnum árin.
Og þá var komið að því að skapa Dans með Baddý.
Í DAG FÆ ÉG Í RAUN AÐ LIFA DRAUMINN SEM ÉG HAFÐI. OG ÞAÐ ER SKO ALDREI OF SEINT AÐ LÁTA DRAUMA RÆTAST. ÉG FÆ AÐ SEMJA DANSA, SKAPA RÚTÍNUR, DANSA NÁNAST Á HVERJUM DEGI OG DEILA ÞESSARI GLEÐI MEÐ ÖÐRUM KONUM.
ÞAÐ ER LÍKA KJARNINN Í ÞVÍ SEM MIG LANGAR AÐ GERA MEÐ DANS MEÐ BADDÝ.
MIG LANGAR AÐ FÁ KONUR AFTUR Á DANSGÓLFIÐ.
KONUR SEM DÖNSUÐU ÞEGAR ÞÆR VORU YNGRI OG SAKNA ÞESS. KONUR SEM HAFA ALLTAF LANGAÐ AÐ DANSA EN ALDREI ÞORAÐ. OG KONUR SEM EINFALDLEGA ELSKA TÓNLIST OG LANGAR AÐ HREYFA SIG, SLEPPA SÉR OG FINNA AFTUR ÞESSA TILFINNINGU AÐ VERA VIRKILEGA LIFANDI.
ÉG VIL SKAPA NÆS RÝMI OG ANDRÚMSLOFT ÞAR SEM ENGINN ER AÐ DÆMA. ÞAR SEM ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ VERA „GÓÐ Í AÐ DANSA“, LÍTA ÚT Á ÁKVEÐINN HÁTT EÐA KUNNA ÁKVEÐIN SPOR.
DANS ER TJÁNING OG TUNGUMÁL. DANS ER GLEÐI.
ÞAÐ ER FÁTT BETRA.